Jæja komiði blessuð og sæl...
Langt síðan síðast maður má ekkert vera að þessu 
En að allt öðru, af mér er allt gott að frétta,
er bara að vinna í vöku svaka stuð
Vinn út maí og liggur leið
okkar Guðrúnar til eyja aftur hehe... það er reyndar ekki alveg
komið á hreint með vinnu fyrir mig.. en það reddast
hef enga trú á öðru.
En ég er farinn að verða soldið pirraður á að
bíða eftir nýja mótorhjólinu mínu en það átti að koma í síðustu
viku en nýjustu fréttirnar eru að það komi í næstu viku og vona ég
að það standist. En þeir ætla að taka peugeot skellinöðruna mína
uppí á 260.000 kr hélt hann..
sem er bara snilld þá
þarf ég að borga um 200.000 kr út og restina á láni
hehe..
Hann Hörður Snær lenti nú ekki í skemmtilegu dæmi
á djamminu í borginni sl. helgi.. Hann var bara að skemmta sér og
endaði það með því að hann fékk bjórglas í andlitið og með þeim
afleyðingum að hann endaði á sjúkrahúsinu og fór í augnaðgerð og
óvíst að hann fái fulla sjón á öðru auganu.. Vona bara það
besta.. Það er vonandi að náunginn sem gerði þetta
finnist og fái dágóðan dóm!! En Hörður minn vonandi að þetta fari
bara sem allra best og að þú jafnir þig og getir farið að hjóla á
nýja gripnum þínum aftur 

Geggjað hjól!! Til Hamingju vinur..
Svo ungaði Sigrún systir út 25. apríl.. Bættist
því við lítill drengur í fjölskylduna
Við Guðrún kíktum á þau á
föstudaginn fyrir viku, algjört krútt.. En Til hamingju Sigrún,
Steini og Rebekka Rut 

Prinsinn..
En ég hef ekki mikið meira að segja í bili er
bara á Akureyri og fer aftur suður í kvöld.. en ég set mynd af
hjólinu hingað inn um leið og ég fæ hjólið hvenar sem það
verður!!
Bæó...
Gísli Stefánsson